Stjórn fiskveiða

Miðvikudaginn 13. janúar 1999, kl. 16:56:15 (3103)

1999-01-13 16:56:15# 123. lþ. 55.1 fundur 343. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðileyfi o.fl.) frv. 1/1999, sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 55. fundur, 123. lþ.

[16:56]

Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. skýr svör. Ég skil það svo að þrátt fyrir hugmyndir hans sé það meginstefna hv. þm. að það eigi að taka veiðiréttinn af trillukörlunum og bjóða hann upp og ég þakka hv. þm. fyrir að hafa lýst því svo skýrt sem hann gerði.