Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Forseti getur ekki stillt sig um að vekja athygli á því að það er um ein og hálf klukkustund síðan fyrirspurninni var útbýtt og nú er svarið komið. Hæstv. ráðherrar eru oft gagnrýndir fyrir að vera seinir til svars og þess vegna er ástæða til að þakka fyrir nú þegar svar berst samdægurs.