Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Þessum samningi var gefið ár til aðlögunar. En það sem hv. þm. ýjar að eru fyrst og fremst kjaramál. Það hefur verið uppi kjaradeila sem hefur ekki verið leyst á öllum stöðum vegna þess að hluti sjúkraflutningamanna vill vera í samfloti með Landssambandi slökkviliðsmanna. Það er ekki á hendi heilbrrn., heldur fjmrn., þannig að ég get ekki svarað neinu um það og ætla ekki að reyna það. Um það eru aðaldeilurnar sem hafa verið uppi og þess vegna höfum við lent í nokkrum vandamálum vegna þessara kjaramála. Það er náttúrlega ekki bara í þessum geira heldur í svo mörgum öðrum og verður sennilega aldrei hægt að loka þeim hring.
Hv. þm. spurði af hverju ekki væri gert ráð fyrir sjúkraflutningskostnaði innan reksturs hjúkrunarheimila og dvalarheimila almennt. Auðvitað er gert ráð fyrir ýmsum kostnaðarliðum þó þeir séu kannski ekki eyrnamerktir sjúkraflutningum sérstaklega. Ég veit að þetta hefur verið þungur baggi á mörgum dvalarheimilum því að ef við tökum Klaustur sem dæmi þá býst ég við að það kosti 80--100 þús. kr. að flytja sjúkling frá Klaustri til Reykjavíkur og sá kostnaður leggst á heimilið.