Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins

Þriðjudaginn 09. febrúar 1999, kl. 13:59:22 (3367)

1999-02-09 13:59:22# 123. lþ. 61.6 fundur 223. mál: #A Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins# (vöruþróunar- og markaðsdeild) frv., viðskrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 123. lþ.

[13:59]

Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):

Herra forseti. Gleggstu heimildir um afstöðu hv. þm. til þessa máls á sínum tíma eru Alþingistíðindi og atkvæðagreiðslan þegar málið var afgreitt. Þar hef ég gengið úr skugga um að hv. þm. greiddi atkvæði með Nýsköpunarsjóðnum við lokaafgreiðslu þess máls. Þess vegna kom það mér nokkuð á óvart, en kannski ekki í ljósi sögunnar, að hv. þm. hefði skipt um skoðun.