Ágúst Einarsson (andsvar):
Herra forseti. Mér er ljúft að staðfesta það sem hv. þm. sagði. Það hefur oft komið fyrir að hann hafi greitt atkvæði á móti. Ég held ég hafi sagt að hann gerði það aldrei. Hann gerir það oftast að styðja ríkisstjórnina þrátt fyrir að hann mótmæli stefnu hennar í einstökum atriðum en það hefur komið fyrir í einstaka tilvikum að hann hafi fylgt sinni sannfæringu til enda í atkvæðagreiðslum en það hefur hins vegar ekki verið mjög oft.