Verðbréfasjóðir

Þriðjudaginn 09. febrúar 1999, kl. 14:09:50 (3373)

1999-02-09 14:09:50# 123. lþ. 61.7 fundur 224. mál: #A verðbréfasjóðir# (innlendir sjóðir) frv., ÁE (ber af sér sakir)
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 123. lþ.

[14:09]

Ágúst Einarsson:

Herra forseti. Hið rétta hefur komið fram í málinu, að hæstv. ráðherra hefur fengið rangar upplýsingar um afstöðu mína. Ég ætla ekki að elta meira ólar í sambandi við það. Hann hefði hins vegar verið maður að meiri ef hann hefði beðist afsökunar á þeim ummælum sem hann lét hér falla.