Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Áður en gengið er til dagskrár vill forseti tilkynna um utandagskrárumræðu. Hún fer fram um kl. 15.30 í dag og er um húsnæðismál Leiklistarskóla Íslands. Málshefjandi er Steingrímur J. Sigfússon og menntmrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í allt að hálfa klukkustund.