Ragnar Arnalds (andsvar):
Herra forseti. Ég held það hafi verið misheyrn hjá hv. þm. að ég hafi verið að tala um að flokkarnir væru útilokaðir, ég sagði það alveg skýrt að spurningin væri um hvort þeir ættu rétt á jöfnunarsætum og það er það sem er óréttlætið í þessu, að þingflokkur sem kannski fær 9 þús. atkvæði, fær mann kjörinn í einu kjördæmi, á ekki rétt á nema þessu eina þingsæti sem hann hefur fengið kjör í þótt ljóst sé að hann ætti hlutfallslega séð rétt á fleiri mönnum, sennilega þremur sætum, þannig að það er verið að svipta hann þeim rétti, þeim mannréttindum sem ég tel að þeir sem bera fram þann lista, ættu að njóta, að fá þingmenn í réttu hlutfalli við fylgi sitt, það er einfaldlega verið að svipta hann þeim rétti. Sá sem fær 9 þús. atkvæði á sennilega rétt á þremur þingmönnum en fær bara einn.
Ég vil svo spyrja hv. þm. um það af því hann sagði að margt hefði verið skoðað í þessari nefnd, hvort nefndin hafi kynnt sér þá gríðarlega miklu umfjöllun sem stjórnarskrárnefndin sem hér sat og var lögð niður fyrir nokkrum árum gerði um persónubundið kjör. Þetta mál var viðfangsefni nefndarinnar í tvö til þrjú ár. Skrifaðar voru vandaðar og miklar skýrslur um þá möguleika og satt að segja unnið býsna vel á því sviði því nefndin leit á þetta sem eitt sitt helsta verkefni en fróðlegt væri að vita hvort nefndin hafi síðan skoðað það sem þarna var fjallað um.