Hjörleifur Guttormsson (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég vek athygli á að hér var að bregðast við ræðu minni frsm. nefndarinnar sem hefur fjallað um málið og vék ekki einu orði að gagnrýni minni á frv. sem nú er til umræðu nema svona í þessum almenna hneykslunartón, hafði ekkert fram að færa til að svara þeirri gagnrýni sem ég hafði uppi á þær tillögur sem hér liggja fyrir um grundvallarþætti í stjórnskipun Íslands eða í stjórnarskránni varðandi kjördæmaskipan í landinu og forsendur hennar. Í staðinn er komið hér upp og flutt það sem menn heyrðu um neikvæðni mína, að ég vildi ekki taka við neinu til leiðréttingar fyrir landsbyggðina, ég gerði ekkert með það o.s.frv. Hv. þm. hefur ekki haft fyrir því að hlusta.
Mál mitt var það að ég taldi og tel það ekki skynsamlega málafylgju að þegar við erum að ræða um grunnþátt í stjórnskipun Íslands séu menn að binda það við einhverjar aðgerðir í byggðamálum sem slíkar. Þá er ég að tala um grundvöll málsins. Það á ekki að þurfa að kaupa stuðning við fráleitar breytingar á stjórnskipun landsins með einhverri dúsu í byggðamálum sem er ekki merkilegri en svo að hér liggur ekkert fyrir til samþykktar. Ég tók það sérstaklega fram en hv. þm. kaus að heyra það ekki, að það væri auðvitað allt saman vel þegið, það væri betra en ekkert en það þyrfti þá að vera þannig að hægt væri að taka afstöðu til þess. En það er þessi aðferð, sem jafnvel þó að hv. þm. hefði komið annars staðar frá hefði sagt að bæri einkenni Framsfl. og forustu hans nú um stundir, að koma með dúsur af þessum toga inn í mál sem er annars eðlis inn í grundvallarþátt sem við erum að ræða í sambandi við stjórnarskrárbeytingu.