Frsm. stjórnarskrárn. (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Hv. þm. getur kallað þetta dúsur eða hvað sem hann kýs. En ég held að það hljóti að vera jákvætt og til bóta að grípa til aðgerða til eflingar byggð, hvort sem það tengist þessu máli eða ekki. Það vill svo til að formaður þingflokks hans lagði mikla áherslu á það í nefndinni sem mótaði þessar tillögur að farið yrði í þessar aðgerðir í tengslum við þetta mál og var að sjálfsögðu orðið við því. Ég er reyndar ekki sannfærð um að hann hafi endilega komið með þær tillögur í nefndina en alla vega varð það niðurstaðan og ég er ákaflega hreykin af því að svo varð.
Ég tók eftir því að hv. þm. svaraði ekki þeirri spurningu sem ég lagði fyrir hann vegna þess að mér fannst hann vera neikvæður í ræðu sinni. Þegar hann talar um fjórðunga í sambandi við kjördæmaskiptinguna hljómar það í sjálfu sér ágætlega en með tilliti til íbúafjöldans í fjórðungunum gengur sú tillaga ekki upp. Hún hljóðar upp á það að Austurland hefði þrjá þingmenn, Reykjavík --- sem ég heyri að hann vill ekki skipta --- hefði 22 o.s.frv. Þessi tillaga, ef hún yrði sett fram og reiknuð út, mundi hafa það í för með sér að uppbótarþingmenn eða jöfnunarþingmenn þyrftu að vera mjög margir, og það er alveg gjörsamlega á skjön við þau skilaboð sem við fengum í nefndina frá þingflokki Alþb. og óháðra þar sem hv. þm. sat þegar þessar tillögur voru allar í undirbúningi. Og ef hann er ekki einu sinni sammála formanni síns nýja flokks þá veit ég eiginlega ekki hvar hans meðbræður eru.