Menningarhús á landsbyggðinni

Mánudaginn 15. febrúar 1999, kl. 15:45:18 (3585)

1999-02-15 15:45:18# 123. lþ. 65.1 fundur 250#B menningarhús á landsbyggðinni# (óundirbúin fsp.), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 65. fundur, 123. lþ.

[15:45]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Ég vil árétta af þessu tilefni að ég er ekki að negla mig við annað en það sem ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum og fram kemur í tilkynningu hennar frá 7. janúar sl. Það er að sjálfsögðu ekki á mínu færi að breyta þeirri ákvörðun eða tilkynningu sem gefin var að viðstöddum forsrh., utanrrh., félmrh. og mér. Þar var þessu lýst yfir og ríkisstjórnin ákvað að leggja málið fram með þessum hætti og það er ekki við því að búast að ég lýsi því yfir að ríkisstjórnin hafi horfið frá þeirri ákvörðun sem kom fram í þeirri ályktun sem birt var 7. janúar sl.