Fjáröflun til vegagerðar

Mánudaginn 15. febrúar 1999, kl. 18:09:44 (3621)

1999-02-15 18:09:44# 123. lþ. 65.20 fundur 317. mál: #A fjáröflun til vegagerðar# (sérútbúnar bifreiðar fatlaðra) frv., Flm. GHall (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 65. fundur, 123. lþ.

[18:09]

Flm. (Guðmundur Hallvarðsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um fjáröflun til vegagerðar, nr. 3/1987, með síðari breytingum.

Flm. ásamt mér eru hv. þm. Árni Ragnar Árnason, Guðjón Guðmundsson, Sigríður Anna Þórðardóttir, Guðni Ágústsson og Ólafur Örn Haraldsson.

Í 1. gr. frv. segir svo:

,,Við B-lið 4. gr. laganna bætist ný málsgrein, 4. mgr., svohljóðandi: Fella skal niður þungaskatt innheimtan samkvæmt ökumæli (kílómetragjaldi) sem fellur á akstur sérútbúinnar bifreiðar í eigu fatlaðra einstaklinga, sem fá örorkulífeyri eða ökustyrk. Sama gildir um sérútbúnar bifreiðar foreldra eða framfærenda barna sem fá umönnunargreiðslur.``

Í 2. gr. segir:

,,Við 3. mgr. A-liðar 7. gr. laganna bætast tveir nýir málsliðir sem orðast svo: Fella skal niður eða endurgreiða þungaskatt af sérútbúnum bifreiðum í eigu fatlaðra einstaklinga sem fá örorkulífeyri eða örorkustyrk. Sama gildir um sérútbúnar bifreiðar foreldra eða framfærenda barna sem fá umönnunargreiðslur.``

Í greinargerð segir m.a., með leyfi forseta:

,,Á vegum Reykjavíkurborgar er rekin ferðaþjónusta fyrir fatlaða samhliða rekstri Strætisvagna Reykjavíkur. Þessi þjónusta hefur mælst vel fyrir en hefur þó þá annmarka að panta þarf far með dags fyrirvara auk þess sem þjónustan er lokuð frá kl. 23.00 til kl. 9.00 á morgnana. Enn fremur reka sameiginlega þessa þjónustu Hafnarfjörður, Bessastaðahreppur og Mosfellsbær annars vegar og hins vegar Kópavogur og Garðabær. Nokkrir fatlaðir einstaklingar, sem áður hafa notið þessarar þjónustu, hafa með ýtrasta sparnaði og ráðdeildarsemi fest kaup á eigin bifreið og þannig létt ákveðnu álagi af ferðaþjónustunni. Í nokkrum tilfellum, þegar um mikið fatlaða einstaklinga er að ræða, hafa þeir þurft að kaupa sér sendiferðabifreið sérinnréttaða með lyftu fyrir hjólastól.

Það er ljóst að fatlaðir einstaklingar og foreldrar eða framfærendur barna, sem fá umönnunargreiðslur, geta af illri nauðsyn þurft á stærri bifreiðum að halda og velja því í sumum tilfellum dísilbifreiðar í sparnaðarskyni, þrátt fyrir að þær séu oftast dýrari í innkaupum. Sparnaður sem næst með notkun dísilbifreiðar yrði að engu ef þeir sem hér um ræðir þyrftu að greiða þennan skatt. En sem kunnugt er þarf mikinn akstur til að ná sparnaði með rekstri dísilbifreiðar þegar nefndur skattur er greiddur.

Þessir einstaklingar þurfa að greiða geysiháan þungaskatt af bifreiðum sínum þar sem fjárhæð skattsins miðast við þyngd hvort sem greitt er kílómetragjald samkvæmt ökumæli eða árlegt fastagjald, sbr. lög um fjáröflun til vegagerðar.

Hér er lagt til að fella niður fyrrnefndan skatt af bifreiðum í eigu þessara einstaklinga.``

Herra forseti. Ég vil vitna til bréfs sem ég fékk sent. Það skýrir kannski allt sem skýra þarf í þessu máli. Þar segir svo:

,,Ég er bundinn rafknúnum hjólastól eftir bílslys 1980. Frá þeim tíma hef ég þurft að eiga bensínfrekan sendibíl með hjólastólalyftu vegna þess að ég kemst ekki inn í hefðbundna fólksbifreið. Bifreiðar þessar hafa verið mjög dýrar í rekstri. Ég hef reynt að spara hann nema rétt úr og í vinnu vegna þess að efnahagur leyfir ekki mikla notkun á honum.

Ef þetta gengur í gegn er það mikil bót fyrir mig og marga aðra í minni aðstöðu og hagur allra að fatlaðir séu virkir í þjóðfélaginu og komist um án mikils kostnaðar.``

Hér mun vera um innan við tíu aðila að ræða.

Herra forseti. Þetta mál er mikilvægt og ég vænti þess, þótt nokkuð sé liðið á þingtímann, að það fái skjóta meðferð.

Ég vil að lokinni 2. umr. vísa málinu til efh.- og viðskn.