Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Eins og hv. fyrirspyrjandi tók fram, þá tók Alþingi ómakið af forsrh. vegna seinagangs hans og svaraði fyrirspurninni myndarlega í fjárlögum. Þar er tryggt nægilegt fé til að uppbyggingin á Eiríksstöðum í Haukadal verði að veruleika. Heimamenn eru mjög sáttir við þá fjármuni sem þingið hefur varið til þessa verkefnis.
Í mínum huga er ekki vafi á því að verkefnið er mikilvægt. Í því sambandi bendi ég á að Íslendingar hafa ákveðið að eiga þátt í uppbyggingu á Brattahlíð á Grænlandi með Grænlendingum til þess að minnast næsta kaflans sem varð á eftir Eiríksstöðum. Þaðan rekja menn sig síðan yfir hafið til Vínlands og þar hafa yfirvöld landsins í góðri sátt við allan almenning gert ráð fyrir að minnast veglega hlutar Íslendinga í landafundunum miklu, þess frumkvæðis og þeirrar þekkingu sem þar bjó að baki.
Ég geri ekki lítið úr því að afar þýðingarmikið er að nota þessi tímamót og hinar sögulegu staðreyndir Íslandi til framdráttar, undirstrika myndarlega afrek landafundamanna eins og áður var gert í hinum merku sögum okkar.
Hins vegar mundi skjóta skökku við að gera þetta myndarlega meðan engra verka sæi stað hér heima. Ég tel að afar erfitt væri fyrir okkur að útskýra það fyrir þeim hópum sem við vonandi náum að vekja áhuga á þætti Íslendinga forðum, hinni miklu sögu og merku atburðum. Við mundum valda þeim miklum vonbrigðum ef á daginn kæmi að ekki hefði verið brugðist myndarlega við á þennan endann.
Ég tek undir með hv. fyrirspyrjanda. Þetta er fyrsta skrefið. Hjá Dalamönnum eru háar hugmyndir eins og menn vita. Á þeim slóðum ríkja metnaðarfullir og framsæknir menn í margvíslegum embættum, bæði formlegum og óformlegum. Auðvitað á að taka undir með þeim og hjálpa þeim við að gera drauma sína að veruleika. Það kann að taka einhvern tíma en það er áríðandi að góður vilji sé í þinghúsinu til að leggjast á árar með þeim.