Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Dómsmrn. sér um framkvæmd kosninga og að kynna það hverjir eru í framboði. Það er hvorki í kosningalögum né í hlutverki dómsmrn. að kynna málstað einstakra flokka. Það sem hv. fyrirspyrjandi og hv. 15. þm. Reykv. hafa vikið að er spurningin um hvort gera eigi ráðstafanir í sjónvarpi til þess að túlka stjórnmálaumræður. Það er viðfangsefni sem heyrir undir annað ráðuneyti. Það heyrir ekki undir dómsmrn. og á að bera upp við menntmrh. sem fer með málefni Ríkisútvarpsins og útvarpsmálefni almennt.