Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Í tilefni af orðum ráðherrans vil ég taka það fram hve ég er ánægð með það að að gerð þessa frv. komu fulltrúar allra stjórnmálaflokkana. Það hefur verið að færast í vöxt á þessu kjörtímabili að stjórnarflokkarnir, eða ráðherrar á vegum stjórnarflokkanna, hafi valið að hleypa ekki fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna að gerð frumvarpa sinna. Þar sem um er að ræða frumvörp sem eru mikilvæg frá sjónarmiði heildarinnar og almannahagsmuna, þá er þetta afar misráðið. Í því sambandi má nefna jafnréttisfrv. sem er á dagskrá fundarins á eftir. Fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna hafa ekkert komið að því máli. Ég vil því þakka ráðherranum fyrir að hafa haft þessa lýðræðislegu hugsun að baki við gerð frv.
Annað atriði sem ég vil spyrja ráðherrann um og gleymdi í ræðu minni áðan varðar listabókstafi. Oft hafa verið að koma fram flokkar, tímabundið, bæði til sveitarstjórna og alþingiskosninga. Þeir hafa valið sér listabókstaf. Ef þessi framboð og bókstafurinn sem þeir hafa valið sér er ekki afskráð, þá eru þessir listabókstafir fráteknir. Því eru æðifáir bókstafir í stafrófinu lausir, ef svo má segja, fyrir framboð til Alþingis. Ég spyr því ráðherrann: Er eitthvað í þessu frv., sem ég hef ekki séð, sem tekur á því, þegar samtök hafa verið lögð niður eða framboð er ekki lengur til staðar, að skylda sé að skila bókstafnum og hann sé þar með laus til umráða fyrir aðra.