Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Það sem ég tel að hæstv. ráðherra sé í raun að iðka með þessu tali sínu um Norsk Hydro og álverið á Reyðarfirði er blekkingaleikur. En látum það liggja á milli hluta. Gefum okkur að þetta sé allt saman rétt og þetta sé enn í pípunum.
Hæstv. ráðherra hefur talað um að hann vilji stíga skref til sátta í þeim deilum sem vissulega hafa risið um þetta mál. Ég hef spurt hæstv. ráðherra: Er hann reiðubúinn til að beita sér fyrir því að gert verði lögformlegt umhverfismat á áhrifum Fljótsdalsvirkjunar?
Hæstv. ráðherra lýsti því yfir í október að niðurstaða um það mundi koma í lok síðasta árs. Hún er ekki enn komin. Hvað sem líður ágreiningi okkar um það hvort þarna verði álver eða ekki þá hlýtur hæstv. ráðherra að vera sammála mér um að allar líkur séu á því að það tefjist. Þar með er brott fallin sú röksemd að ekki sé tími fyrir slíkt mat.
Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra, fyrst hann kemur hér í andsvari og nefnir Norsk Hydro: Treystir hann sér til að svara þeirri spurningu sem ég varpaði til hans í ræðu minni? Mun hann beita sér fyrir því að farið verði í lögformlegt umhverfismat á afleiðingum Fljótsdalsvirkjunar?