Jafnréttislög

Fimmtudaginn 18. febrúar 1999, kl. 14:17:59 (3878)

1999-02-18 14:17:59# 123. lþ. 69.4 fundur 498. mál: #A jafnréttislög# (heildarlög) frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 69. fundur, 123. lþ.

[14:17]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir að hafa áhuga á því að málið nái afgreiðslu fyrir þinglok. Þar deilum við áhuga.

Ég vil láta þess getið að þó að stjórnarandstaðan hafi ekki beinlínis átt sæti eða fulltrúa í þeirri vinnunefnd sem endurskoðaði lögin þá var leitað mjög eftir viðhorfi stjórnarandstöðunnar við þessa endurskoðun. Þeir voru kvaddir til þó að þeir ættu ekki sæti í vinnuhópnum.