Rannveig Guðmundsdóttir:
Herra forseti. Ég tek undir gagnrýni, í athugasemdum um störf þingsins, á það svar sem hv. þm. Ögmundur Jónasson fær við fyrirspurn sinni. Það gengur ekki lengur að svo óljóst sé hvert eftirlitshlutverk Alþingis á að vera og hvaða spurningum alþingismenn eigi rétt á að fá svarað. Það hefur gerst aftur og aftur að alþingismenn borið fram óþægilegar spurningar. Þá hefur verið farið fram hjá spurningunum eða villandi svör gefin. Við í þingflokki jafnaðarmanna höfum rekið okkur á það þegar um óþægilegar spurningar hefur verið að ræða sem hefðu getað grafið undan pólitískri stöðu ráðherra.
Hér er borin fram óþægileg fyrirspurn um afmarkaðan þátt og þá velur ráðherra og ráðuneyti að gefa mynd af umfangi allrar aðkeyptrar ráðgjafarþjónustu fyrir ríkið í heild. Í stað þess að svara spurningunni er ákveðið að taka saman allan kostnað við aðkeypta þjónustu hjá opinberum stofnunum. Spurningin var ekki um það og þetta er beinlínis villandi svar og rangt.
Við höfum áður fengið að heyra að stjórnsýslulög gefi þingmönnum sama rétt og almenningi, að þingmenn eigi sama rétt og almenningur til að fá upplýsingar úr stjórnsýslunni. Þetta er ekki viðunandi, herra forseti. Það verður að leiða til lykta hver réttur þingmanna er, hvert eftirlitshlutverk Alþingis er og hvernig gera eigi Alþingi kleift að sinna því eftirlitshlutverki.
Ég spyr forseta: Hvað hyggst forsn. og forseti gera til að gera alþingismönnum kleift að sinna eftirlitshlutverki sínu? Á hvaða hátt á að taka á því að þingmönnum hafa ítrekað borist villandi eða röng svör eða svör þar sem gefið er í skyn að þingmönnum komi það ekki við sem þeir hafa spurt um?