Þingflokkur Kvennalistans

Föstudaginn 19. febrúar 1999, kl. 10:52:36 (3906)

1999-02-19 10:52:36# 123. lþ. 70.99 fundur 280#B þingflokkur Kvennalistans# (aths. um störf þingsins), KH
[prenta uppsett í dálka] 70. fundur, 123. lþ.

[10:52]

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. fyrir samstarfið og ætla ekki að munnhöggvast við hana um hver sitji eftir í þingflokknum. En ég vil segja frá því að þegar ég upplýsti um ákvörðun mína, að standa að stofnun nýs stjórnmálaflokks, þá varð að samkomulagi milli mín og hv. þm. sem hér talaði síðast að við mundum sitja saman í þingflokki Kvennalistans út þetta kjörtímabil. Það hefur nú brugðist og því eru kaflaskipti í sögu Kvennalistans.