Almannatryggingar og félagsleg aðstoð

Föstudaginn 19. febrúar 1999, kl. 19:49:26 (3981)

1999-02-19 19:49:26# 123. lþ. 70.9 fundur 521. mál: #A almannatryggingar og félagsleg aðstoð# (úrskurðarnefnd o.fl.) frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 70. fundur, 123. lþ.

[19:49]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg ljóst að við eigum mikið undir því komið að hv. formaður heilbr.- og trn. bretti upp ermarnar því að ég veit að hann er kraftmikill maður og mikið mæðir á honum. Við þurfum ekkert að deila um það hvort hann hafi haft og fá eða of mörg mál. Við getum bara flett þessu upp í þingtíðindum.

Ég þakka hv. formanni fyrir að ætla að drífa þetta í gegn. Ég heyri að hann er tilbúinn til þess.