Málefni aldraðra

Föstudaginn 19. febrúar 1999, kl. 19:50:28 (3982)

1999-02-19 19:50:28# 123. lþ. 70.10 fundur 527. mál: #A málefni aldraðra# (heildarlög) frv., heilbrrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 70. fundur, 123. lþ.

[19:50]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um málefni aldraðra. Frv. er samið í samræmi við ákvæði í núgildandi lögum um málefni aldraðra, nr. 82/1989, þar sem kveðið er á um að lögin skuli endurskoða innan fimm ára frá gildistöku þeirra.

Samstarfsnefnd um málefni aldraðra hóf endurskoðun á lögunum og lagði fram drög að frv. Drögin voru send til umsagnar ýmissa samtaka aldraðra, fagfélaga og stjórnvalda sem fara með málefni aldraðra. Umsagnir bárust frá 19 aðilum. Skipuð var nefnd embættismanna og sérfræðinga til að fara yfir umsagnirnar og endurskoða frv.

Það frv. sem hér er mælt fyrir er byggt á tillögum þessara tveggja nefnda og umsagnaraðilanna.

Frv. gerir ráð fyrir nokkuð breyttri framsetningu laganna, markmiðið er sett fram á einfaldari og skýrari hátt og tiltekin hugtök eru skilgreind. Sem dæmi má nefna að orðið aldraður er skilgreint í frv. sem einstaklingur sem orðinn er 67 ára gamall. Hugtak þetta er ekki skilgreint í núgildandi lögum og hefur það leitt til óskýrleika í framkvæmd. Stuðst er við aldursmark ákvæða almannatryggingalaga um ellilífeyri. Í frv. er hugtakið öldrunarmál einnig skilgreint, en það eru þau mál sem varða aldraða og heyra undir yfirstjórn heilbr.- og trmrh.

Lögð er mikil áhersla á þátttöku aldraðra í ákvörðunum um eigin málefni og reynt að einfalda ákvarðanatöku og framkvæmd.

Ein mikilvægasta breytingin frá núgildandi lögum er að gert er ráð fyrir fjölgun fulltrúa í samstarfsnefnd um málefni aldraðra og að skipun nefndarmanna fari fram að loknum alþingiskosningum en ekki sveitarstjórnarkosningum eins og samkvæmt núgildandi lögum.

Samkvæmt núgildandi lögum sitja þrír fulltrúar í nefndinni, skipaðir af heilbr.- og trmrh., einn tilnefndur af Öldrunarráði Íslands, annar tilnefndur af Sambandi ísl. sveitarfélaga og sá þriðji án tilnefningar. Tveir fulltrúar bætast við samkvæmt frv., einn tilnefndur af Landssambandi eldri borgara og annar án tilnefningar. Fulltrúar án tilnefningar verða því tveir og á annar þeirra að hafa fagþekkingu á málefnum aldraðra.

Rökin fyrir því að stækka samstarfsnefndina eru fyrst og fremst mikilvægi hennar. Nefndin fer með stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra en árlegt ráðstöfunarfé sjóðsins er um það bil hálfur milljarður króna. Nefndin ber því mikla ábyrgð og þótti rétt að dreifa henni á fleiri hendur. Einnig er það í samræmi við nútímastjórnsýsluhætti að hafa fulltrúa sérhópa með í ráðum þegar hlutast er til um mál varðandi þá.

Samkvæmt núgildandi lögum sjá þrír aðilar um þjónustu við aldraða, öldrunarnefndir, öldrunarmálaráð og þjónustuhópa aldraðra. Það gefur augaleið að slíkt fyrirkomulag er ekki hagkvæmt, sérstaklega í fámennum byggðarlögum. Frv. gerir ráð fyrir því að öldrunarnefndir og öldrunarmálaráð verði lögð niður og að þjónustuhópar aldraðra verði styrktir. Þjónustuhópar aldraðra hafa verið virkastir af þeim hópum sem starfa samkvæmt núgildandi lögum og með því að efla þá er verið að taka mið af reynslu og einnig er það til hagræðis og einföldunar. Frv. gerir ráð fyrir að þjónustuhópar aldraðra verði skipaðir á formlegri hátt en nú er, að fjölgað verði úr fjórum í fimm fulltrúa og að þjónustuhópur verði í hverju heilsugæsluumdæmi. Sveitarstjórnir í umdæmi heilsugæslustöðvar skipa fulltrúa í þjónustuhóp aldraðra og samkvæmt núgildandi lögum er það öldrunarnefnd sem kveður menn til starfa í þjónustuhóp. Það er óbreytt að í hópnum sitji læknir og hjúkrunarfræðingur, en nýmæli að þeir séu tilnefndir af héraðslækni. Tveir fulltrúar í þjónustuhópi eru án tilnefningar og einn fulltrúi tilnefndur af samtökum eldri borgara á svæðinu. Skipun fulltrúa sem tilnefndur er af samtökum eldri borgara er nýmæli og er því enn verið að leggja áherslu á þátttöku aldraðra í ákvörðunum um eigin málefni.

Mjög mikilvægt er að skýrar reglur gildi um skipun og verkefni þjónustuhópa aldraðra þar sem þeir gegna afar þýðingarmiklu starfi. Þeir eiga á starfssvæði sínu að fylgjast með heilsufari og félagslegri velferð aldraðra og samhæfa þjónustu. Þeir eiga jafnframt að gera tillögur um öldrunarþjónustu á starfssvæðinu og leitast við að tryggja að aldraðir fái þá þjónustu sem þeir þarfnast og kynna þeim þá kosti sem í boði eru. Þeir gegna einnig því mikilvæga starfi að meta þörf aldraðra fyrir vistun á stofnun.

Framkvæmdasjóður aldraðra mun áfram hafa það hlutverk sem hann hefur samkvæmt núgildandi lögum, þ.e. hann á að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um land allt. Í því felst að sjóðurinn fjármagnar byggingu þjónustumiðstöðva, dagvista og stofnana fyrir aldraða. Einnig fjármagnar sjóðurinn rekstur stofnþjónustu fyrir aldraða í sérstökum tilvikum. Þess má sérstaklega geta að viðhald stofnana telst vera hluti af rekstri þeirra. Ákvæði í núgildandi lögum um tekjur sjóðsins eru óbreytt í frv.

Nauðsynlegt er að bæta þekkingu á öldrunarmálum í þjóðfélaginu þar sem öldruðum á eftir að fjölga verulega næstu áratugina. Það þarf að kynna málefni aldraðra fyrir almenningi til að auka skilning á aðstæðum þeirra og aðbúnaði. Í frv. er það nýmæli að Framkvæmdasjóður aldraðra veitir fjármagn til að styrkja kennslu og kynningu á öldrunarmálum.

Stofnanir fyrir aldraða falla undir lög um heilbrigðisþjónustu. Til að gæta samræmis var talið rétt að hafa ákvæði um stjórn stofnana fyrir aldraða svo til samhljóða ákvæði laga um heilbrigðisþjónustu.

Þar sem rekstur stofnananna er greiddur úr ríkissjóði þótti eðlilegt að heilbr.- og trmrh. ætti fulltrúa í stjórn allra stofnana fyrir aldraða, hvort sem þær eru ríkisstofnanir eða ekki.

Virðulegi forseti. Ég hef í stuttu máli fjallað um frv. til laga um málefni aldraðra. Öllum má vera ljóst hve mikilvægt er að styrkja málaflokkinn. Frv. einfaldar og skýrir og síðast en ekki síst eykur það verulega þátttöku aldraðra í ákvörðunum um eigin málefni. Málefni aldraðra hafa mjög verið til umræðu að undanförnu og m.a. hefur á það verið bent að endurskoðun á lögum um málefni aldraðra sé bæði tímabær og mikilvæg. Því er fagnaðarefni að þessari endurskoðun sé lokið. Hún hefur verið unnin í mikilli og góðri samvinnu þeirra sem hagsmuna eiga að gæta og ég tel að vel hafi tekist til.

Ég tel mikilvægt að á ári aldraðra takist að afgreiða svo mikilvægt mál frá hinu háa Alþingi og treysti hv. þingmönnum til að tryggja að málið fái brautargengi. Ég leyfi mér því, virðulegi forseti, að leggja til að frv. verði vísað til hv. heilbr.- og trn. og til 2. umr.