Breyting á skipan þingflokka

Mánudaginn 22. febrúar 1999, kl. 14:03:04 (3989)

1999-02-22 14:03:04# 123. lþ. 71.91 fundur 282#B breyting á skipan þingflokka# (aths. um störf þingsins), ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 123. lþ.

[14:03]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Þingflokkur óháðra ræddi á sérstökum þingflokksfundi í morgun þá ákvörðun hv. þm. Kristínar Halldórsdóttur að ganga til liðs við þingflokk óháðra. Þingflokkurinn fagnar ákvörðun Kristínar Halldórsdóttur og samþykkti aðild hennar að þingflokknum samhljóða.

Þetta vildi ég tilkynna hæstv. forseta og þingheimi.