Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Einn reginmunur er á afstöðu minni og hæstv. utanrrh. Ég er ekki bara að hugsa um framfarir Íslands til ársins 2010 heldur út alla næstu öld. Ég er líka að hugsa um það fólk sem á að byggja Ísland framtíðinni.
En hæstv. ráðherra flækir sig í eigin neti röksemda. Hann talar um að undirritun Kyoto-bókunarinnar yrði óhjákvæmilega til þess að við gætum ekki nýtt endurnýjanlegar orkulindir. Það er rangt vegna þess að hæstv. utanrrh. hefur sjálfur lagt fram stefnuna um að það eigi að fara í að búa til mengunarlaust eldsneyti á Íslandi og það kostar orku. Hvar eigum við að fá orkuna ef hæstv. ráðherra er búinn að binda hana í verksmiðjum Norsk Hydro? Við notum orkuna ekki bæði til þess að búa til vetni og til þess að búa til málmblendi. Svo einfalt er það.
Það er alveg rétt sem hæstv. ráðherra segir, að umræða um framsal kvóta, mengunarkvóta, er ekki komin nógu langt. En höfum við reynt að þróa hana áfram? Við höfum ekki verið að reyna það. Kannski getur hæstv. ráðherra upplýst mig um eitthvað annað. En samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef höfum við ekki verið í fremstu röð þeirra þjóða sem hafa viljað reyna að ná fram skipulagi á framsal mengunarkvóta.
Ef það væri svo er alveg ljóst að við gætum áfram verið að búa til stóriðju á Íslandi ef viðkomandi fyrirtæki kaupa t.d. kvóta og að sjálfsögðu ef klárt er að það verður ekki til þess að heildarútblástur eykst. Það er auðvitað forsendan. Hæstv. ráðherra á ekki að koma hingað og setja sig á háan hest og halda því fram að mér sé ekki umhugað um velferð þjóðar minnar. Að sjálfsögðu er mér umhugað um hana. Mér er umhugað um hana bæði í bráð og líka í lengd. Ég held því fram að sú aðferð sem ég hef talað fyrir þjóni betur hagsmunum þjóðarinnar en sú aðferð sem hæstv. ráðherra hefur talað fyrir.
Það er líka spurning um velferð þjóðar að geta rekið hér ferðamennsku, ferðaþjónustu og að geta selt afurðir sjávarútvegsins eins og við höfum hingað til. Það er líka verðmæti fólgið í hinni mengunarlausu og hreinu ásýnd Íslands eins og ég veit að hæstv. utanrrh. skilur ef hann sest niður og reynir að hugsa þetta yfirvegað.