Flm. (Ólafur G. Einarsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég hef svo sem engar athugasemdir að gera við þetta andsvar hv. þm. Það er ekkert sem mælir á móti því að nefndir hafi frumkvæði um einstök mál og þær hafa raunverulega alveg sjálfstæði til þess og hafa raunar gert það.
Hin ábendingin um að orkumál og umhverfismál ættu vel saman í nefnd, ég get alveg tekið undir það. Mér finnst það vera vel athugandi í sambandi við nefndaskipanina, sem við munum athuga.