JHall fyrir HÁs

Mánudaginn 01. mars 1999, kl. 15:02:07 (4163)

1999-03-01 15:02:07# 123. lþ. 74.93 fundur 298#B JHall fyrir HÁs#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 123. lþ.

[15:02]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jónas Hallgrímsson framkvæmdastjóri, Seyðisfirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl.``

Jónas Hallgrímsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hann boðinn velkominn til starfa.