Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):
Herra forseti. Það er verið að kanna allar leiðir í þessu því það er alveg ljóst að styrkja þarf forsendur fyrir tækni- og verkfræðimenntun í landinu. Í sjálfu sér er ekki flókið mál að setja lög um Tækniháskóla Íslands. Hins vegar tel ég nauðsynlegt að fara að ábendingum aðila í atvinnulífinu og í þeim greinum verkfræðinga og tæknifræðinga sem ítrekað hafa áréttað nauðsyn þess að þetta mál verði leitt til lykta með einhvers konar samstarfi eða sameiningu eða hvað menn vilja kalla það, og það er það sem er til skoðunar innan ráðuneytisins.