Skerðing örorkubóta

Mánudaginn 01. mars 1999, kl. 15:11:41 (4170)

1999-03-01 15:11:41# 123. lþ. 74.1 fundur 302#B skerðing örorkubóta# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 123. lþ.

[15:11]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Ég get ekki talað um einstök persónuleg mál úr ræðustóli Alþingis. Mér finnst það ekki passa. En ég vil segja hv. þm. af því að hún spyr sérstaklega um þetta tilvik, að bætur eru tekjutengdar og svo hefur verið um langan tíma.