Mannabreytingar í nefndum

Þriðjudaginn 02. mars 1999, kl. 13:32:27 (4218)

1999-03-02 13:32:27# 123. lþ. 75.92 fundur 308#B mannabreytingar í nefndum#, Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 75. fundur, 123. lþ.

[13:32]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseta hefur borist ósk frá þingflokki Samfylkingarinnar um mannaskipti í nefndum, samkvæmt 16. gr. þingskapa. Breytingarnar eru þær að í efh.- og viðskn. taki Sigríður Jóhannesdóttir sæti Svavars Gestssonar. Í sérnefnd um stjórnarskrármál taki Bryndís Hlöðversdóttir sæti Svavars Gestssonar og í utanrmn. verði Ragnar Arnalds varamaður í stað Svavars Gestssonar. Ef ekki eru athugasemdir við þetta skoðast það samþykkt.