Málefni fatlaðra

Miðvikudaginn 03. mars 1999, kl. 14:13:35 (4270)

1999-03-03 14:13:35# 123. lþ. 76.11 fundur 564. mál: #A málefni fatlaðra# (starfsmenn svæðisskrifstofu) frv. 52/1999, KÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur, 123. lþ.

[14:13]

Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Það var ágætt að þetta skyldi koma fram hjá hæstv. forsrh. Við vitum öll að mjög skammur tími er til stefnu og að það verður auðvitað erfitt um vik ef upp koma ágreiningsmál og við skulum bara sjá hvað setur og hvað fram kemur í nefndinni. Eins og ég hef margsinnis nefnt er ákaflega lítill tími til nefndastarfa og ef, eins og hæstv. forsrh. segir, ágreiningur reynist vera um þetta, þá bara situr þar við.