Vísindasiðanefnd

Miðvikudaginn 03. mars 1999, kl. 18:22:07 (4320)

1999-03-03 18:22:07# 123. lþ. 77.12 fundur 507. mál: #A vísindasiðanefnd# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., Fyrirspyrjandi HG (ber af sér sakir)
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 123. lþ.

[18:22]

Hjörleifur Guttormsson:

Virðulegur forseti. Vegna orða síðasta hv. þm. þá vil ég endurtaka það sem kom fram í máli mínu að ég væri ekki að vega að þeim einstaklingi sem í hlut ætti. Seta hans sem formanns vísindasiðanefndar er á ábyrgð hæstv. heilbrrh. sem vitandi um þessa stöðu hefur skipað viðkomandi einstakling formann vísindasiðanefndar og hefur ekki boðað neinar breytingar á því.