Ríkisreikningur 1997

Laugardaginn 06. mars 1999, kl. 13:57:44 (4387)

1999-03-06 13:57:44# 123. lþ. 79.21 fundur 152. mál: #A ríkisreikningur 1997# frv. 25/1999, Frsm. StB
[prenta uppsett í dálka] 79. fundur, 123. lþ.

[13:57]

Frsm. fjárln. (Sturla Böðvarsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. fjárln. um frv. til laga um samþykkt á ríkisreikningi fyrir árið 1997.

Nefndin hefur haft frumvarpið til athugunar og farið yfir skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Nefndin leggur ríka áherslu á að ráðherra taki tillit til athugasemda Ríkisendurskoðunar og sjái til þess að ráðuneyti og stofnanir bregðist við þeim ábendingum sem stofnunin hefur sett fram.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir nál. skrifa auk mín Jón Kristjánsson, Kristinn H. Gunnarsson, Siv Friðleifsdóttir, Kristján Pálsson, Kristín Halldórsdóttir og Arnbjörg Sveinsdóttir.