Brottför hersins og yfirtaka Íslendinga á rekstri Keflavíkurflugvallar

Laugardaginn 06. mars 1999, kl. 15:03:43 (4393)

1999-03-06 15:03:43# 123. lþ. 79.15 fundur 9. mál: #A brottför hersins og yfirtaka Íslendinga á rekstri Keflavíkurflugvallar# þál., Frsm. meiri hluta TIO (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 79. fundur, 123. lþ.

[15:03]

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Tómas Ingi Olrich) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil inna hv. síðasta ræðumann, hv. þm. Össur Skarphéðinsson, eftir því hvort hann geti upplýst um það hvort nefndarmennirnir þrír sem undirrita nál. styðji ekki tillöguna, hvort þeir séu á móti henni.