Frsm. minni hluta utanrmn. (Össur Skarphéðinsson) (andsvar):
Herra forseti. Mér fannst þessi ræða hv. formanns utanrmn. dapurleg. Mér finnst hann hafa sýnt það í umræðum á þingi að hann ber miklu betra skynbragð á þróun og framvindu utanríkismála síðustu áratuga en birtist í þessari ræðu. Í einlægni virðist mér hv. þm. fastur í hjólförum fortíðarinnar og sé að reyna að gera mat úr þessu til þess að birta einhvern innri ágreining Samfylkingarinnar.
Herra forseti. Ég hef enga dul dregið á það að ekki er samræmd afstaða til þessa máls innan Samfylkingarinnar. Það er alveg ljóst að innan Samfylkingarinnar er að finna menn sem vilja að herinn fari. Ég tek það líka fram, herra forseti, og spyr hv. þm.: Getur hann staðhæft það að innan stjórnarliðsins, meðal þingmanna sem styðja ríkisstjórn Íslands, sé enginn þeirrar skoðunar að herinn eigi að fara? Ég hef nefnilega rökstudda ástæðu til þess að telja að í liði stjórnarinnar sé ekki fullur einhugur um þetta mál.
Það er rangt þegar hv. þm. gerir því skóna að afstaða Samfylkingarinnar til NATO sé óljós. Má ég lesa upp það sem segir hér, sem ég held að hv. þm. hafi tuldrað nokkrum sinnum í ræðu sinni. Það segir, með leyfi forseta, í áliti okkar:
,,Við teljum ekki rétt að breytingar verði gerðar á aðild Íslands að NATO á næsta kjörtímabili.``
Hv. þm. spyr jafnframt: Hvað með kjörtímabilið þar á eftir? Hann gefur í skyn að við séum að reyna að smygla okkur inn í ríkisstjórn til að geta síðar notað aðstöðu okkar til þess að ganga úr NATO í skjóli myrkurs helst. Að því er ekki stefnt.
Herra forseti. Ég kem aðallega upp til þess að ræða það sem hv. þm. hafði eftir hv. þm. Margréti Frímannsdóttur. Mér fyndist smekklegra ef hv. þm. ræddi þetta þegar hv. þm. Margrét Frímannsdóttir er viðstödd. Ég tel nefnilega að hann hafi ekki farið rétt með. Ef ég man það sem hv. þm. Margrét Frímannsdóttir sagði, þá var hún að tala um að það væri gott að fá þessa umræðu fram og hún væri hlynnt því.
Ég er á móti tillögunni sem liggur hér fyrir en hlynntur umræðunni sem hefur svipt ákveðnum tjöldum frá Sjálfstfl. Það er reyndar sláandi að aðeins Sjálfstfl. stendur fyrir þessari umræðu. Hvar eru hinir stjórnarliðarnir? Þeir skammast sín fyrir þetta.