Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins

Mánudaginn 08. mars 1999, kl. 13:54:37 (4450)

1999-03-08 13:54:37# 123. lþ. 80.34 fundur 223. mál: #A Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins# (vöruþróunar- og markaðsdeild) frv. 32/1999, Frsm. meiri hluta VE
[prenta uppsett í dálka] 80. fundur, 123. lþ.

[13:54]

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. og brtt. frá meiri hluta efh.- og viðskn. um frv. til laga um breytingar á lögum um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins.

Nefndin fjallaði um málið og sendi það til umsagnar. Nefndin gerir tillögu um eina litla breytingu þannig að inn komi ný grein sem felur í sér að ársreikningi sjóðsins skuli fylgja skrá yfir hlutafjárkaup, lánveitingar og óafturkræf framlög. Þetta mál var nokkuð rætt í nefndinni og niðurstaða meiri hlutans var að flytja brtt. þessa efnis.