Þáltill. um jarðgöng á Austurlandi og umfjöllun samgn.

Þriðjudaginn 09. mars 1999, kl. 23:28:47 (4611)

1999-03-09 23:28:47# 123. lþ. 82.94 fundur 336#B þáltill. um jarðgöng á Austurlandi og umfjöllun samgn.# (um fundarstjórn), ArnbS
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 123. lþ.

[23:28]

Arnbjörg Sveinsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég held að enn sé ástæða til að benda á að samgn. kemst að niðurstöðu um afgreiðslu á tillögu sem er 356. mál á dagskrá þessa þings. Í samgn. eru fulltrúar frá flestum stjórnmálaöflum á Íslandi. Er einhver vafi á þessu? Hér er um að ræða efnislega niðurstöðu sem þingnefnd kemst að, samhljóða.

(Forseti (GÁ): Forseti tekur fram að hann hefur frestað þessu máli um sinn.)