Hjálmar Árnason:
Herra forseti. Vandi vertíðarbáta er mikill. Það er afleiðing af langri þróun sem hefur verið að eiga sér stað og má segja að sigið hafi á ógæfuhliðina hjá þessum flota í útgerð okkar. Það er hins vegar dæmigert fyrir vinnubrögð formanns Alþfl. að koma hér á síðasta degi þingsins í upphlaupi með tillögu á borð við þá sem hann hefur verið að kynna. Ég tel það fáránlegan skrípaleik og væri fróðlegt að vita hvort t.d. formaður Alþfl. hafi rætt þessi mál við sjútvrh. sem hefur valdið í þessu máli.
Ég vek jafnframt athygli á því að fylkingin á a.m.k. tvo fulltrúa í hv. sjútvn. þar sem væri vettvangur til þess að taka upp mál af þessum toga. Það hefur ekki verið gert. Ég tel að vandi vertíðarbáta og hátt kvótaverð verði ekki leyst með sýndarmennsku og upphlaupi á borð við það sem hv. þm. Sighvatur Björgvinsson stendur fyrir rétt einu sinni. Ég segi nei.