Kristján Pálsson:
Herra forseti. Vandi bátaflotans er að miklum hluta til kominn vegna aukinnar veiðiskyldu sem var ákveðin í þinginu fyrir ári síðan. Það varð til þess að leigumarkaður á fiski varð svo þröngur að varla fæst leigður fiskur í dag fyrir þá báta sem eiga lítinn kvóta og þess vegna er þessi bátafloti sem hefur misst miklar veiðiheimildir í þeim vandræðum sem hann er í dag.
Kratar voru ekki á móti því að auka veiðiskylduna í fyrra. Þeir hafa stutt allar aðgerðir sem hafa orðið til þess að þrengja að þessum flota. Ég hef aftur á móti lagt til að þetta eigi að gera eftir rallið hjá Hafró í vor þegar séð verður hvort stofninn sé nógu sterkur til að auka megi við veiðiheimildir frá því sem ákveðið hefur verið. En mér finnst að fyrir eigi að liggja niðurstöður rannsóknarferðar sem árlega er farin á vegum Hafrannsóknastofnunar. Það er ekki hægt að taka þær ákvarðanir fyrr en í apríl eða byrjun maí og ég styð að það verði gert þegar þar að kemur. Ég álít að þessi tillaga krata sé sýndarmennska, herra forseti. Ég segi því nei við henni.