Evrópsk samstarfsráð í fyrirtækjum

Miðvikudaginn 10. mars 1999, kl. 11:44:34 (4676)

1999-03-10 11:44:34# 123. lþ. 83.30 fundur 184. mál: #A evrópsk samstarfsráð í fyrirtækjum# frv. 61/1999, Frsm. KÁ
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 123. lþ.

[11:44]

Frsm. félmn. (Kristín Ástgeirsdóttir):

Hæstv. forseti. Við yfirlestur á stöðuskjali eftir 2. umr. kom í ljós að örlítil mistök höfðu átt sér stað við gerð brtt. Hér er því lögð til viðbótarbreyting sem felur í sér að næsti málsliður, sem átti að falla brott en fórst fyrir vegna mistaka, falli brott.