1999-03-11 00:36:52# 123. lþ. 84.25 fundur 585. mál: #A endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi# frv. 43/1999, Frsm. meiri hluta StG
[prenta uppsett í dálka] 84. fundur, 123. lþ.

[24:36]

Frsm. meiri hluta iðnn. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1104 frá meiri hluta iðnn. um frv. til laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Það er 585. mál þingsins. Í nál. segir svo:

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Árna Magnússon frá iðnaðarráðuneyti, Eggert J. Hilmarsson frá fjármálaráðuneyti, Breka Karlsson frá Kvikmyndasjóði Íslands, Guðjón Rúnarsson og Birgi Ármannsson frá Verslunarráði Íslands og kvikmyndagerðarmennina Ara Kristinsson, Jón Þór Hannesson og Snorra Þórisson.

Í frumvarpinu er lagt til að ákveðið hlutfall framleiðslukostnaðar við kvikmyndagerð sem til fellur hér á landi verði endurgreitt að verkinu loknu, að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Er gert ráð fyrir að þessar ráðstafanir komi til með að laða að erlenda kvikmyndagerðarmenn og leiði það til þess að íslenskt fagfólk þjálfist til sjálfstæðra verka á þessu sviði. Þá er gert ráð fyrir að tækjakostur kvikmyndaiðnaðarins hér á landi muni batna auk þess sem náttúru landsins og menningu verði komið á framfæri.

Meiri hlutinn telur ljóst að ef auka á veg kvikmyndaiðnaðarins hér á landi verði að mæta kröfum kvikmyndaframleiðenda um stuðning með einhverjum hætti. Telur meiri hlutinn að sú ráðstöfun sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu sé kvikmyndaiðnaðinum til verulegra hagsbóta og komi til með að auka tekjur ríkis og þjóðar af greininni.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir nál. rita Stefán Guðmundsson formaður iðnn., Hjálmar Árnason, Pétur H. Blöndal, Katrín Fjeldsted, Guðjón Guðmundsson, Sigríður A. Þórðardóttir, Gísli S. Einarsson og Magnús Árni Magnússon. Hv. þm. Hjörleifur Guttormsson skilar séráliti.