1999-03-11 01:03:51# 123. lþ. 84.25 fundur 585. mál: #A endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi# frv. 43/1999, RA (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 84. fundur, 123. lþ.

[25:03]

Ragnar Arnalds (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla þá ekki að tefja tímann frekar í leit að sökudólgi. Ég trúi því svona rétt mátulega að sökudólgurinn sé sá sem talaði hér seinast. En við skulum láta það kyrrt liggja.

Ég vil bara ítreka áskoranir mínar til þeirra sem setjast í valdastóla á komandi hausti að þeir geri þær endurbætur á frv. sem bersýnilega eru bráðnauðsynlegar.