1999-03-11 03:42:31# 123. lþ. 84.30 fundur 526. mál: #A hollustuhættir og mengunarvarnir# (gjaldskrá sveitarfélaga) frv. 59/1999, Frsm. meiri hluta ÓÖH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 84. fundur, 123. lþ.

[27:42]

Frsm. meiri hluta umhvn. (Ólafur Örn Haraldsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Sú brtt. sem lögð er fram var skoðuð ítarlega af lögfræðingum og lögfróðum aðilum og er það svo um þá vinnu eins og oft áður að formaður þessarar nefndar verður að treysta þeim úrskurði. Ég hef því ekki að óreyndu ástæðu til annars en að ætla að brtt. þessi og sú skipan sem hún mælir fyrir um standist þær kröfur sem hv. þm. Hjörleifur Guttormsson flutti nokkur orð um í varúðar-, varnaðar- og ábendingarskyni.