Frsm. meiri hluta umhvn. (Ólafur Örn Haraldsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Vegna orða og spurninga sem lotið hafa að afgreiðslu málsins í umhvn. vil ég láta það koma fram að málið fékk hina fyllstu meðferð og að samþykkt brtt. var hefðbundin og bar að með venjulegum og hætti. Málið var rætt í hv. umhvn. og m.a. voru þau sjónarmið rædd sem hv. þm. Hjörleifur Guttormsson nefndi áðan. Þá lét formaður þess getið við afgreiðslu málsins að fram væri komin brtt. frá meiri hluta nefndarinnar þess efnis sem getur um í brtt. Þá var strax ljóst að ekki mundu allir nefndarmenn styðja þá brtt. og var málið afgreitt þannig frá nefndinni. Hér er því um venjulega og hefðbundna afgreiðslu máls að ræða.