Almannatryggingar

Fimmtudaginn 11. mars 1999, kl. 13:05:54 (4953)

1999-03-11 13:05:54# 123. lþ. 86.2 fundur 520. mál: #A almannatryggingar# (örorkumat) frv. 62/1999, SF
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 123. lþ.

[13:05]

Siv Friðleifsdóttir:

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir brtt. á þskj. 1194 við frv. til laga um breytingar á lögum um almannatryggingar, 520. máli þingsins. Með brtt. eru leiðréttar tilvísanir til 12. gr. í lögunum en þeirri grein er breytt með umræddu frv. Breytingarnar eru einungis tæknilegs eðlis.