Frumvarp um breytingu á þingsköpum

Fimmtudaginn 11. mars 1999, kl. 15:42:16 (4969)

1999-03-11 15:42:16# 123. lþ. 87.93 fundur 365#B frumvarp um breytingu á þingsköpum# (um fundarstjórn), SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 87. fundur, 123. lþ.

[15:42]

Sigríður A. Þórðardóttir:

Herra forseti. Af því að það er gert að umtalsefni hér að sérnefndin sem fjallaði um þingskapalagafrv. hefur ekki lokið störfum, þá vil ég að það komi fram af minni hálfu sem formanns nefndarinnar að ekki vannst tími til að afgreiða málið þrátt fyrir góðan vilja þingflokksformanna til þess, en hann kom mjög greinilega fram í störfum nefndarinnar. Það er bara þannig að tíminn reyndist of naumur.

Ég met þann góða vilja sem fram kom í máli þingmannsins og ég veit að við eigum öll eftir að ná saman í þessu góða máli.