Hlutað um sæti þingmanna skv. 4. mgr. 3. gr. þingskapa

Fimmtudaginn 01. október 1998, kl. 15:58:33 (14)

1998-10-01 15:58:33# 123. lþ. 1.3 fundur 9#B hlutað um sæti þingmanna skv. 4. mgr. 3. gr. þingskapa#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 1. fundur, 123. lþ.

[15:58]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti vill geta þess að eins og venja er mun hann láta undirbúa töflu með fundatíma fastanefnda og er ætlun forseta að hún verði lögð í hólf þingmanna á mánudag. Reglulegir nefndafundir hefjast svo í næstu viku með formanns- og varaformannskjöri í nefndunum. Það er ósk forseta að allar nefndir ljúki kjöri embættismanna í næstu viku.