Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Þar sem ég hef ekki flutt ræðu mína í dag þá get ég ekki gert sérstakar athugasemdir. Ég mun koma að þeim síðar. En mig langar að nota tækifærið til að beina spurningum til hæstv. fjmrh. þar sem hann er á förum.
Ég rak augun í það á bls. 12 í frv. til fjárlaga fyrir árið 1999 að það stendur til að selja fasteignina Borgartún 6 í Reykjavík þar sem eru fundar- og veislusalir ríkisins. Ég vil biðja hæstv. fjmrh. að skýra það fyrir okkur hvers vegna stendur til að selja þetta húsnæði. Er meiningin að ríkið hætti að leigja út þessa fundarsali og þar með að bjóða fram fundarsali og veislusali fyrir ríkið og starfsmenn ríkisins og aðra þá sem hafa haft aðgang að þessum sölum? Hvað býr hér að baki, hæstv. ráðherra?