Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Það er óhjákvæmilegt að benda á hvert þessi nýi flokkur er að stefna, hvað hann er að leggja til varðandi atvinnumál á ákveðnum svæðum landsins. Þessi flokkur, herra forseti, þetta nýja stjórnmálaafl leggur það til í þeirri málefnaskrá sem þeir hafa lagt fram að herinn fari. Það fylgja því 1.600--1.700 bein störf. Það er óumdeilt og ekkert hefur komið fram um að þetta sé ekki meining og vilji þessara samtaka. Það hefur einnig komið fram að þessi samtök eru líka á móti magnesíumverksmiðju og annarri uppbyggingu stóriðju eða hugmynda sem eru á borðinu í dag á Suðurnesjum um atvinnuuppbyggingu. Þetta nýja framboð er á móti því. Og það er mjög nauðsynlegt að kjósendur, íbúar á þessum svæðum viti hvað hv. þm. eru að meina með þessum málflutningi. Það er komið fram og ég þakka fyrir það, herra forseti, að hv. þm. hefur útskýrt að þau samtök munu leggjast gegn frekari atvinnuuppbyggingu á stóriðjusviði á Suðurnesjum eða í kjördæminu en orðin er.