Kristján Pálsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. utanrrh. fyrir þessi svör. Ég skil það að hann þekki ekki þetta einstaka dæmi en mörg mál hafa komið upp í þessum samskiptum þó að þetta sé nú það sem ég hef heyrt einna alvarlegast. Þetta er þróun sem ég held að enginn vilji sjá, þ.e. að það myndist hér tortryggni og spenna á milli starfsmanna og þeirra sem taka að sér verkefni fyrir varnarliðið. Að sjálfsögðu eru menn að leita leiða til þess að spara og það skilja allir. En það er samt ekki og verður aldrei liðið af okkar hálfu geri ég ráð fyrir, að starfsmenn verði látnir gjalda lækkandi kostnaðar við reksturinn með lægri launum. Það getur ekki gengið upp frekar en það að ekki er hægt að nota rússneska starfsmenn til þess að byggja hér upp orkuver vegna þess að íslenskir starfsmenn eru svo dýrir. Sú stefna getur ekki gengið upp, hvorki hjá varnarliðinu, Landsvirkjun né öðrum.