Fangelsismál

Mánudaginn 12. október 1998, kl. 15:32:55 (277)

1998-10-12 15:32:55# 123. lþ. 7.1 fundur 44#B fangelsismál# (óundirbúin fsp.), dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur, 123. lþ.

[15:32]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Ég þekki ekki dæmið sem er tilefni þessarar fyrirspurnar og vil að svo stöddu ekki leggja mat á það. Til þess þarf ég að hafa í höndum upplýsingar um öll málsatvik. Ég get ekki og vil ekki svara siðferðilegum spurningum eins og málið liggur hér fyrir.