Fangelsismál

Mánudaginn 12. október 1998, kl. 15:34:08 (279)

1998-10-12 15:34:08# 123. lþ. 7.1 fundur 44#B fangelsismál# (óundirbúin fsp.), dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur, 123. lþ.

[15:34]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins ítreka að þær aðstæður geta verið fyrir hendi að lögregla þurfi að hafa afskipti af slíkum málum. Það er útilokað fyrir mig að leggja mat á þetta einstaka tilvik og ég ítreka það.